Allt sem Google býður upp á er í þína þágu

Skráðu þig inn á Google reikninginn þinn til að nýta alla þjónustu Google til fulls. Með reikningnum geturðu gert meira með því að sérsníða upplifun þína á Google og fá þægilegan aðgang að mikilvægum upplýsingum hvar sem þú ert.

Hjálpar þér

Þegar þú ert skráð(ur) inn vinnur öll Google þjónustan sem þú notar þægilega saman til að aðstoða þig við verkefni dagsins, t.d. við samstillingu Gmail við Google dagatal og Google kort til að tryggja að þú missir ekki af neinu.

Gert fyrir þig

Reikningurinn veitir sambærilega, sérsniðna og stillanlega upplifun hvert sem þú ferð, óháð því hvaða tæki eða Google þjónustu þú notar.

Verndar þig

Google reikningurinn þinn er varinn með fyrsta flokks öryggiseiginleikum sem hjálpa við að greina og útiloka ógnir sjálfkrafa, jafnvel áður en þær ná til þín.

Reiðubúin til aðstoðar

Reiðubúin til aðstoðar

Google þjónusta, allt frá Chrome til YouTube, virkar betur þegar þú ert skráð(ur) inn. Með reikningnum þínum hefurðu aðgang að gagnlegum eiginleikum á borð við sjálfvirka útfyllingu, sérsniðnar tillögur og margt fleira — hvar sem er og í hvaða tæki sem er.

Aðeins fyrir þig

Aðeins fyrir þig

Google reikningurinn þinn lagar alla þjónustu að þér. Skráðu þig einfaldlega inn á reikninginn þinn til að fá aðgang að kjörstillingum, persónuvernd og sérstillingum í hvaða tæki sem er.

Hjálpar við að tryggja persónuvernd og öryggi gagnanna þinna

Hjálpar við að tryggja persónuvernd og öryggi gagnanna þinna

Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt að vernda allar upplýsingarnar á Google-reikningnum þínum. Þess vegna höfum við séð til þess að öflug vörn og verkfæri á borð við öryggisskoðun og Google-aðgangsorðastjórnun séu innbyggð í alla reikninga.

Google upplifun þín hefst hérna